Fréttir

Unglingaflokkur í Oddamótinu
Karlaflokkur í Oddamótinu
Kvennaflokkur í Oddamótinu
Sigurvegarar í punktaflokki

Sjávarútvegsmótaröðin komin í gang - Íslandssögumótið fer fram á Ísafirði um helgina

Um liðna helgi fóru fyrstu tvö mótin fram í Sjávarútvegsmótaröðinni.  Oddamótið á Patreksfirði og Arnarlaxmótið á Bíldudal.

Í Oddamótinu unnu:

Karlaflokkur:  Guðmundur Albertsson, GBO eftir bráðabana við Ásgeir Kristjánsson GÍ, léku á 72 höggum

Kvennaflokkur:  Björg Sæmundsdóttir GP á 86 höggum

Unglingaflokkur:  Pétur Kristjánsson GÍ á 38 punktum

Punktaflokkur:  Pétur Már Sigurðsson GB á 39 punktum.

Heildarúrslit í mótinu

Í Arnarlaxmótinu urðu sigurvegarar:

Kvennaflokkur:  Hrafnhildur Sigurðardóttir GL á 84 höggum

Karlaflokkur:  Ernir Steinn Arnarsson GBO á 67 höggum

Unglingaflokkur:  Guðmundur Shiransson GÍ  á 50 punktum

Punktaflokkur:  Helgi Hrafn Hermannsson GÍ á 45 punktum

Heildarúrslit í mótinu

Ekki var hægt að vinna til verðlauna í tveimur flokkum í mótunum.

 

Búið er að reikna út stigin eftir mót helgarinnar en sigahæstu kylfingarnir eftir mót sumarsins verða krýndir meistarar í mótaröðinni.  Mótin verða alls 8 talsins og hægt að nálgast stöðuna hér á heimasíðu GÍ:

https://golfisa.is/mot/

Sjávarútvegsmótaröðin heldur svo áfarm um komandi helgi með Íslandssögumótinu á Ísafirði og Klofningsmótinu á Þingeyri.  


Deila