Fréttir

Mótafréttir

 

 

Magnea Garðarsdóttir vann mót gærkvöldsins, lék á 23 punktum, glæsilega gert, úrslit í mótinu má sá hér.  Ekki var búið að segja fréttir af síðasta fimmtudagsmóti sem fór fram 29. júlí en þá sigraði Sigríður Lovísa Sigurðardóttir, Golfklúbbi Álftaness á 20 punktum, úrslit í því móti má finna  hér

Eftir mótin er Salmar efstur í mótaröðinni með 174 punkta, heildarstöðuna má sjá hér.  12 bestu mótin telja, nóg af mótum eftir.

 

Á laugardag fer svo fram hið skemmtilega Nettómót.  Fyrri 9 holurnar leiknar í Bolungarvík og þær seinni hér á Ísafirði.  Punktamót, verðlaun fyrir fyrstu 5 sætin og boðið til grillveislu eftir mót.  

Hvetjum kylfinga til að skrá sig tímanlega, skráning fer fram hér.


Deila