Fréttir

Sigurvegarar

Meistaramót GÍ 2026

Dagana 8.-11. júlí fór fram meistaramót Golfklúbbs Ísafjarðar og aldrei hafa verið fleiri kylfingar skráðir til leiks.

Þátttakendur voru 61 talsins og keppt var í 7 flokkum sem léku ýmist 9 eða 18 holur á dag á meðan mótið stóð.

Keppnisfyrirkomulag í meistaramóti er höggleikur án forgjafar. Mikið líf og fjör var á vellinum þessa daga og völlurinn hefur sjaldan litið betur út og eiga vallarstarfsmenn mikið hrós skilið fyrir umhirðu hans og vinnu í kringum mótið. Veður hafði áhrif á lokadaga mótsins þar sem suðvestan hvassviðri gerði kylfingum erfiðara fyrir en þeir eiga að venjast í Tungudalnum. 

Hjálmar Helgi Jakobsson sigraði 1. flokk karla á 296 höggum, í öðru sæti var Anton Helgi Guðjónsson á 299 höggum og í þriðja sæti var Julo Thor Rafnsson á 300 höggum. 1. Flokk kvenna sigraði Andrea Gylfadóttir á 380 höggum, í öðru sæti var Sólveig Pálsdóttir á 396 höggum og í því þriðja Ásdís Birna Pálsdóttir á 397 höggum.

Unglingaflokkinn sigraði Tómas Orri Baldursson á 326 höggum í öðru sæti Guðmundur Arnór Shiransson á 331 höggum og í þriðja sæti Grétar Nökkvi Traustason 338 höggum. 

Að móti loknu var boðið til glæsilegrar veislu í golfskálanum þar sem vel heppnuðu móti var fagnað. Við óskum nýjum klúbbmeisturum til hamingju með titlana og þökkum félögum kærlega fyrir þessa góðu þátttöku. 

AG


Deila