Fréttir

Hannibal og Óttar kátir með sigurinn

Hannibal Hafberg og Óttar Guðjónsson unnu VÍSmótið

44 keppendur mættu til leiks í VÍS mótinu, keppnisfyrirkomulag var Texas Scramble og sigruðu Hannibal og Óttar með einu höggi.  Þrjú efsti liðin í mótinu urðu:

1.  Óttar Guðjónsson / Stefán Hannibal Hafberg                  64 högg

2.  Einar Jón Snorrason / Ingólfur Ívar Hallgrímsson            65 högg

3.  Flosi Valgeir Jakobsson / Gunnar Guðberg Samúelsson   67 högg

Þrjú önnur lið enduðu einnig á 67 höggum en Flosi og Gunnar voru bestir á seinni níu.

Heldarúrslt má annars sjá hér

Á fimmtudag fór síðan fram fimmtudagsmót og hafði Gísli Jón Hjaltason sigur á 20 punktum, Baldur Ingi Jónasson naói einni 20 punktum en var verri á síðustu 6.  Heildarúrslit í mótinu má sjá hér.

Eftir mótið heldur Salli enn öruggri forystu í Hamraborgarmótaröðinni, er með 17 stiga forystu á næsta mann.  Munum að 12 bestu mótin telja, nóg eftir, allir eiga séns.  Stöðuna í mótaröðinni má finna hér.


Deila