Fréttir

Hamraborgarmótaröðin

 

Guðbjörn Salmar Jóhannsson vann mót nr. 3 naumlega.  Hann fékk heila 22 punkta líkt og Harpa Guðmundsdóttir.  

Salli vann þar sem hann lék betur á síðustu sex holunum, glæsileg spilamennska hjá þeim tveimur.  Annars var árangur almennt góður en þrír kylfingar náðu 21 punkti og tveir með 20 punkta.

18 keppendur tóku þátt í mótinu sem fram fór í sannkölluðu blíðskaparveðri, annars má sjá árangur allra keppenda hér.

Eftir þrjú mót er Harpa Guðmunds með forystu í mótaröðinni, er með 65 punkta samtals , Sólveig Pálsdóttir er næst með 57 punkta og Guðbjörn Salmar í því þriðja með 52 punkta.  Heildarstöðuna í mótaröðinni má sjá hér.

Næsta mót verður næstkomandi fimmtudag venju samkvæmt, skráning á Golfbox.  Laugardaginn 5. júní verður svo Sjómannadagsmót Íssins, fyrirkomulag Texas Scramble. 

Minnum á að skráningu í holukeppni GÍ lýkur 31. maí, nú þegar eru 18 keppendur skráðir.  Hvetjum alla til að taka þátt í þessu skemmtilega fyrirkomulagi og styrkja unglingastarfið í leiðinni.  Munið að þetta er holukeppni með forgjöf þannig að allir eiga jafna möguleika.

Skráning fer fram hér á Golfbox, einnig má lesa ser nánar til um reglur þar í lýsingu móts.


Deila