Fréttir

Fréttir af mótum

Á laugardaginn var fór fram Landsbankamótið í mikilli veðurblíðu.  Fínn árangur náðist í mótinu og vann Guðmundur Shiransson á 41 punkti, glæsileg spilamennska það. Heildarúrslitin í mótinu.

Nú styttist í að holukeppni GÍ fari af stað.  Til stóð að draga hverjir mætast 17 júní en því hefur nú verð frestað um viku, kylfingar hafa því auka viku til að skrá sig til leiks, skráning í golfbox og allt um fyrirkomulag þar.  Einkar skemmtileg keppni þar sem allir eiga janfana möguleika þar sem þetta er holukeppni með forgjöf, amk þeir sem hafa 36 og lægra í forgjöf, hámarksforgjöf er sem sagt 36.

Fimm umferðum er nú lokið af Hamraborgarmótaröðinni.  Neil Shiran Þórisson situr í toppsætinu en nóg er eftir.  Níu bestu munu telja.

Svo styttist í að Sjávarútvegsmótaröðin hefjist en aðra helgi byrja herlegheitin með mótum á Patró og Bíldudal.


Deila