Baldur sigraði í Hamraborgarmótröðinni
Þá er öllu móthaldi formlega lokið.
Síðasta fimmtudagsmótið fór fram á fimmtudaginn var og sigraði Þorgils Gunnarsson, Golfklúbbi Bolungarvíkur á 20 punktum. Úrslitin í mótinu má finna hér.
Baldur Ingi Jónasson sigraði í Hamraborgarmótaröðinni með glæsibrag, endaði með 13 punkta meira en næsti maður. Árangur úr 12 bestu mótum hvers og eins taldi til stiga.
Ásdís Pálsdóttir var efst kvenna á 180 punktum, 40 punktum á undan næstu konu, Magneu Garðarsdóttur. Reyndar tók Magnea ekki þátt í nema 9 mótum, Ásdís tók þátt í 11.
Lokastöðuna í mótaröðinni má finna hér.
Deila