Baldur og Pétur unnu Sjómannadagsmót Íssins, Þorri sigraði í fimmtudagsmótinu
Baldur ingi Jónasson og Pétur Már Sigurðsson spiluðu gríðarvel og sigruðu með þriggja högga mun, léku á 63 höggum nettó. Næst komu Sólvegi og Guðni á 66 höggum og Shiran/Hafdís á 67. KFí lykt af þessu en allir þessir kylfingar léku fjölmarga leiki fyrir KFÍ á sínum tíma.
Julo Rafnsson sýndi síðan fádæma nákvæmni og varð næstur holu bæði á 6/15 og 7/16.
Annars má sjá úrslitin í heild sinni hér.
Þorvaldur Óli Ragnarsson, nýliði í klúbbnum(Tengdasonur Gauja Ólafs) sigraði í síðasta fimmtudagsmóti á 22 punktum, þrír kylfingar náðu 21 punkti, sjá nánar hér.
Eftir tvær umferðir eru Gauti og Villi matt efstir með 40 punkta en heildarstöðuna má sjá hér.
Síðasti skráningardagur í holukeppni GÍ er á morgun, mánudaginn, 13. júní. Dregið verður í viðureignir þriðjudaginn 14. júni, enn er séns að skrá sig, komnir 22 peppendur, skráning fer fram hér.
Fyrsta mótið í Sjávarútvegsmótaröðinni verður síðan á laugardaginn kemur hér hjá okkur, Hampiðjumótið, fyrsta sinn sem þeir eru með í mótaröðinni, skráning fer fram á golfbox. Fimmtudagsmótið verður á sínum stað.
Deila