Lög Golfklúbbs Ísafjarðar
1. gr. – Heiti
Félagið heitir Golfklúbbur Ísafjarðar, skammstafað GÍ. Heimili og varnarþing er á Ísafirði. Klúbburinn er aðili að Héraðssambandi Vestfirðinga og Golfsambandi Íslands og því háður lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.
2. gr. – Markmið
Markmið klúbbsins er rekstur golfvallar, sala á golfvörum, veitingum og tengdum rekstri, að efla áhuga á golfíþróttinni og skapa sem besta aðstöðu til að iðka hana úti og inni.
3. gr.- Félagsmenn
Félagið er opið öllum þeim sem starfa vilja innan vébanda þess í samræmi við gildandi lög og reglur þess. Um félagsaðild og önnur skyld mál, skal farið að lögum GSÍ og ÍSÍ. Úrsögn úr klúbbnum skal vera skrifleg og miðast við áramót.
4.gr. -Aðalfundur
Aðalfundur er æðsta vald í málefnum klúbbsins og skal haldinn í nóvember ár hvert og skal boða til hans með tölvupósti og á vefsvæði klúbbsins með a.m.k. tíu daga fyrirvara. Hann skal haldinn á Ísafirði. Aðalfundur er löglegur sé hann boðaður samkvæmt ofangreindu.
Lagabreytingar er aðeins hægt að gera á aðalfundi, sé þeirra getið í fundarboði.
Tillaga að lagabreytingu skal hafa borist stjórn klúbbsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund og skal vera skrifleg.
Heimilt er þó að taka fyrir á aðalfundi tillögur til breytinga á lögum félagsins, sem síðar koma fram ef 2/3 hlutar viðstaddra atkvæðisbærra fundarmanna eru því samþykkir.
Til að lagabreytingar öðlist gildi, þarf 2/3 greiddra atkvæða.
Allir skuldlausir félagsmenn 18 ára og eldri hafa kjörgengi til stjórnarstarfa og atkvæðisrétt á aðalfundi. Málfrelsi og tillögurétt hafa allir félagar.
5. gr. – Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir
3. Ársreikningur liðins reikningsárs lagður fram til samþykktar
4. Ákvörðun um árgjöld næsta árs
5. Fjárhagsáætlun næsta árs
6. Lagabreytingar
7. Kosning stjórnar og skoðunarmanna ársreikninga
8. Önnur mál
6 gr. – Stjórn klúbbsins
Stjórn klúbbsins skipa sjö félagsmenn; Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjórnendur sem kosnir á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs.
Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, þrír eru kosnir annað hvert ár. Æskilegt er að stjórnarmenn séu formenn nefnda samanber 7.gr.
Stjórn skiptir með sér verkum. Kjósa skal 1., 2. og 3.varamann til eins árs. Gangi einhver úr stjórn áður en kjörtímabili hans lýkur skal 1. varamaður taka sæti hans til næsta aðalfundar þar sem kjósa skal aðalmann til þess tíma sem eftir er af kjörtímabilinu. Varamönnum er heimilt að sitja stjórnarfundi með málfrelsi en án atkvæðisréttar.
Kjósa skal tvo skoðunarmenn til eins árs í senn. Stjórn skipar í nefndir og fulltrúa á þing.
Eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund skal stjórn skipa þriggja manna uppstillingarnefnd sem hefur það hlutverk að leggja fram tillögu um framboð til stjórnar og varamanna ef ekki koma fram nægjanleg framboð fyrir aðalfund.
Stjórn fer með öll mál klúbbsins milli aðalfunda. Samþykki aðalfundar þarf fyrir meiriháttar fjárfestingum og skuldbindingum.
7. gr. – Nefndir
Á vegum stjórnarinnar skulu að jafnaði starfa eftirfarandi nefndir:
Vallarnefnd
Mótanefnd
Aganefnd
Barna, unglinga- og kennslunefnd
Kvennanefnd
Öldunganefnd
Húsnefnd
Sundagolf
Í hverri þessara nefnda skulu vera 3-5 nefndarmenn. Nefndir skulu starfa samkvæmt sérstöku skipuriti og starfslýsingu sem stjórn setur.
8. gr. – Árgjöld og flatargjöld
Sérhverjum félagsmanni er skylt að greiða árgjald til klúbbsins. Árgjöld skulu ákveðin á aðalfundi. Stjórn klúbbsins skal leggja fram tillögu að árgjöldum.
Eindagi greiðslu árgjalds er 15. maí ár hvert. Stjórn er heimilt að lækka árgjald félaga sem er í skóla 6 mánuði eða lengur eða ef félagi hefur skerta tekjumöguleika vegna aldurs, heilsufars eða annarra sambærilegra aðstæðna. Stjórn ákveður flatargjöld, gjöld í golfhermi, mótagjöld og gjald fyrir skápaleigu.
9. gr. – Ógreidd árgjöld
Félagar fyrirgera öllum klúbbréttindum sínum séu árgjöld ekki greidd á réttum tíma. Stjórn getur veitt undanþágu frá þessu við sérstakar aðstæður.
10. gr. – Umgengisreglur
Við golfleik skal farið eftir gildandi golfreglum á hverjum tíma. Stjórn setur staðarreglur. Mótanefnd getur sett sérreglur séu aðstæður slæmar. Slæm umgengni innan golfvallarsvæðis og í Sundagolfi, getur valdið brottvikningu úr klúbbnum og skal hún vera skrifleg og staðfest af meirihluta klúbbstjórnar.
11. gr. – Reikningsár
Reikningsár klúbbsins er 1. október til 30. september.
12. gr. – Félagsfundir
Stjórn boðar til almennra funda eftir þörfum eða ef tíu eða fleiri fullgildir félagar óska þess skriflega og tilgreini ástæðu. Slíkan fund skal halda innan þriggja vikna frá móttöku slíkrar beðni. Til almennra funda skal boða með sama hætti og aðalfund.
13. gr. – Félagsslit
Liggi fyrir að hætta starfsemi klúbbsins, skal boðað til sérstaks fundar þar að lútandi með tveggja vikna fyrirvara og eigi síðar en einu ári eftir að reglulegri starfsemi er hætt. Slíkur fundur er lögmætur ef helmingur félaga er mættur og 2/3 fundarmenn samþykkja slíka ákvörðun. Mæti ekki nægjanlegur fjöldi félaga, skal boðað til annars fundar innan einnar viku og telst hann löglegur um klúbbslit. Eignir félagsins við slit renna til Héraðssambands Vestfirðinga.
14. gr.
Lög þannig samþykkt á aðalfundi 5. desember 2023.