Fréttir

  • Golfklúbbur Ísafjarðar
  • Fréttir
  • Gauti og Harpa unnu VÍS mótið - Sigurgeir Einar Karlsson vann síðasta fimmtudagsmót - Gauti efstur í Hamraborgarmótaröðinni
Frá VÍS mótinu

Gauti og Harpa unnu VÍS mótið - Sigurgeir Einar Karlsson vann síðasta fimmtudagsmót - Gauti efstur í Hamraborgarmótaröðinni

Leikar fóru þannig í VÍS mótinu að hjónin Friðbjörn Gauti Friðriksson og Harpa Guðmundsdóttir enduðu í fyrsta sæti á 46 punktum.  Gauti lék einkar vel og náði 42 punktum en Harpa reddaði því sem redda þurfti til að ná fyrsta sætinu.

Í öðru sæti urðu hjóni Neil Shiran Þórisson og Hafdís Gunnarsdóttir á 45 punktum og í þriðja sæti hjónin Gunnar Þórðarson og Kristín Hálfdáns (foreldrar Hafdísar) á 44 punktum.

Skilaði greinilega betra skori að velja maka sem makker.

Heildarúrslitin í mótinu má nálgast hér.

 

Hamraborgarmótaröðin heldur sínu striki og nú styttist í að línur skýrist. 

Sigurgeir Einar Karlsson vann síðasta mót á 19 punktum, heildarúrslit hér.

Friðbjörn Gauti heldur þar forystunni með 127 punkta eftir 7 mót.  Næstur kemur Guðni Guðnason með 123 punkta eftir 6 mót.  Bestu 9 mótin telja og spennan mun vaxa þegar kylfingar geta farið að henda út versta hring.

Stöðuna í mótaröðinni má nalgast hér.

 


Deila